Hugur í hjarta
Jóga nidra í netheimum - námskeið í mars 2026
Jóga nidra í netheimum - námskeið í mars 2026
Couldn't load pickup availability
Hvar sem þú ert, hvernig sem þér líður og hvað sem þú getur, hefur þú nú tækifæri til að stunda jóga nidra á eigin forsendum og í þínu eigin rými. Það eina sem þú þarft er að koma þér vel fyrir og tengjast.
Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem eiga erfitt með að mæta á dýnu í jóga- eða hugleiðslu stúdíói og vilja eða þurfa að stunda jóga nidra í sínu eigin rými og á sínum eigin forsendum.
Á þessu námskeiði verður lifandi og opin jóga nidra æfing á miðvikudögum kl.12. Aðgangnum og hljóðinu verður stýrt og þú þarft aldrei að koma fram í mynd. Ef tíminn hentar þér ekki eða þú vilt hlusta á þínum eigin tíma verður æfingin tekin upp og birtist hún á heimasvæði námskeiðiðsins samdægurs. Þannig færð þú aðgang að nýrri æfingu, á lokuðu svæði Hugar í hjarta, sem er þér opin næstu 4 vikur. Þú getur hlustað á þínum eigin tíma, eins oft og þú vilt næstu daga.
Jóga nidra eða öðru nafni jógískur svefn er aðferð slökunar þar sem markmiðið er að koma líkamanum í draumkennt ástand milli svefns og vöku. Rannsóknir sýna að 45 mínútna jóga nidra iðkun jafnist á við þriggja klukkustunda svefn fyrir heila og líkama. Slökunin setur líkamann í heilandi ástand þannig frumur, taugar, bandvefur, vöðvar o.fl. fá tækifæri til að endurnýjast og laga sig á náttúrulegan hátt. Með því að gefa sér þennan tíma má segja að líkaminn fái pásu til að stinga sér í samband og heila sjálfan sig.
Kostir þessarar áskriftar:
- þegar þú skráir þig færðu strax aðgang að einni jóga nidra æfinu og einni gong slökun.
- frír aðgangur að innra svæði Hugar í hjarta
- ný jóga nidra æfing í hverri viku.
- þú getur hlustað hvar og hvenær sem er.
Kristjana Jokumsen er kennari námskeiðsins. Kristjana er með B.A. í uppeldis- og menntunarfræði með sálfræði semaukagrein og M.A. í fötlunarfræði frá Hí. Hún hefur einnig lokið námií stjórnendamarkþjálfun frá HR.
Hún er Reiki Meistari og hefur unnið með reiki og kundalini orku í 20ár. Hún er höfuðbeina- og spjaldhryggjameðferðaraðili, með menntun í NA Shamanisma og er Yin yoga og Yoga Nidra kennari.
Kristjana er annar eigandi Hugur í Hjarta www.hugurihjarta.is og vinnur sem meðferðaraðili hjá snyrtistofunni Fegurð í Hafnarfirði. Hægt er að panta tíma hjá henni hér: https://noona.is/fegurd
Námskeiðið hefst 4.mars kl.12 og er 4 skipti.
Vertu velkomin/nn/ð!
Share
