Hugur í hjarta
Djúpslökun í töfrandi náttúru: Jóga Nidra í Hellisgerði
Djúpslökun í töfrandi náttúru: Jóga Nidra í Hellisgerði
Couldn't load pickup availability
🌿 Djúpslökun í töfrandi náttúru: Jóga Nidra í Hellisgerði 🌿
Gefðu þér stund til að hægja á, anda og tengjast sjálfu þér í hjarta Hafnarfjarðar. Í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð býður Hugur í hjarta ásamt Kristjönu Jokumsen þér að eiga dásamlega stund þar sem töfrar Hellisgerðis og djúpslökun Jóga Nidra renna saman í eitt.
Hellisgerði, með sínum hraunmyndunum, lágvaxna gróðri og leyndardómsfulla andrúmslofti, veitir fullkomið umhverfi til að sleppa tökunum á hversdagsleikanum og finna innri frið.
🧘 Hvað er Jóga Nidra?
Jóga Nidra, oft kallað „andlegur svefn“, er aðferð slökunar þar sem legið er í algjörri kyrrð á meðan leiðbeint er í gegnum djúpa hugleiðslu. markmiðið er að koma líkamanum í draumkennt ástand milli svefns og vöku. Rannsóknir sýna að 30-45 mínútna jóga nidra iðkun jafnist á við þriggja klukkustunda svefn fyrir heila og líkama. Slökunin setur líkamann í heilandi ástand þannig frumur, taugar, bandvefur, vöðva fá tækifæri til að endurnýjast og laga sig á náttúrulegan hátt.
Upphaflega var jóga nidra iðkað í úti í tengingu við náttúruna. Þar var leitast við að koma inn í núið og líkamann með hjálp náttúrutengingar í gegnum skynjun líkamans. Með þessum viðburðum er leitað í upprunan þar sem við hægjum á í hröðu samfélagi, gefum okkur tíma til að tengjast aftur og finna fyrir náttúrunni í gegnum skynjun líkamans.
Engin þörf er á fyrri reynslu – allir geta tekið þátt.
📝 Hagnýtar upplýsingar
Lautin, graslaut sem er aftast í Hellisgerði, nær Skúlaskeiði.
6.júní
13.júní
20.júní
27.júní
⌛kl.14-15
💸Ókeypis
*ATH tímasetningar geta breyst og eru settar fram með fyrirvara um verðurskilyrði
🎒 Hvað þarf að taka með?
Þar sem viðburðurinn fer fram utandyra í faðmi náttúrunnar er mikilvægt að klæða sig vel og tryggja þægindi:
-
Jógamottu eða undirlag til að liggja á.
-
Gott teppi (eða jafnvel svefnpoka) og kodda/púða.
-
Klæðnað eftir veðri: Hlý föt, jafnvel ullarföt, húfu og vettlinga – líkaminn kólnar hratt þegar hann slakar á, þó það sé sumar.
-
(Valfrjálst) Augnhvílu eða slæðu til að setja yfir augun.
Athugið: Ef veðurguðirnir eru ekki með okkur í liði munum við fresta viðburðinum] og verður það tilkynnt með góðum fyrirvara.
Komdu og leyfðu kyrrðinni í hrauninu að umvefja þig. Hlökkum til að njóta stundarinnar með þér!
Share
